Á blaðsíðu tvö í Fréttablaðinu í morgun, segir: „Sjálfstæðismenn í Suðvesturkjördæmi efna til prófkjörs 14. mars til að velja frambjóðendur á lista í kosningunum í apríl.[…]
Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, lét í ljós þá skoðun sína á fundinum að stilla bæri upp á lista enda hefði orðið mikil endurnýjun í flokknum fyrir síðustu kosningar.
Kosið var á milli þeirrar leiðar og tillögu stjórnar kjördæmisráðsins um prófkjör. Var tillaga stjórnarinnar samþykkt svo til samhljóða.“
Elsti flokkurinn – skapaður fyrstur, ergo: móðurlaus.
Er Framsóknarflokkurinn móðurlaus?
Ætlar Sjálfsgæðisflokkurinn að bjóða fram???