Það er merkilegt hvernig heilinn í manni bregður við hinum ýmsu fréttum. Fannst ég lesa það að Sigmundur Davíð hefði alfarið neitað að styðja hugmyndina um að eignir útrásarvíkinga yrðu frystar.
Án þess að velta því nokkuð frekar fyrir mér klingdu inni í hausnum á mér þessi mannanöfn: Finnur – Ólafur – Alfreð.
Auðvitað hef ég ekki nokkra einustu skoðun á því hvernig taka skuli á þessu stóreignafólki. Veit bara að þúsundir manna þjást vegna misindis þeirra. Sonur minn Jón Gils, sem alltaf er hress, sagði við mig í símtali í morgun þegar við ræddum ástandið:
„Ég veit bara það, að maður mætir kunningjum sínum og vinum, mönnum sem alltaf voru glaðbeittir og hressir, nú með dökka bauga undir augum og grátstaf í kverkum.“
Já Óli það eru margir uggandi um sinn hag í dag. Kveðja.
nú þegar neyðarlögin hafa heftandi áhrif á 99% Íslendinga væri í lagi að hefta 0.1% sem ræður yfir 3-500% af auðnum