Fjórar myndir frá heimferð í helgarlok
Eins og fram kemur í síðasta pistli þá var liðin helgi mörgum öðrum helgum fremri, hvað varðar þau ótal atriði sem þarf til til að gleðja sál og anda í einföldum hjörtum. En heimferðin varð ekki síðri en dagarnir í Borgarfirði. Við ákváðum að breyta út af venju og aka Dragann og Hvalfjörð á þessum ljúfa haustdegi.
Við stönsuðum á stöku stað og sumstaðar varð ekki hjá því komist að taka myndir til minninga. Læt fjórar fylgja hér hafi einhver ánægju af. Smellið á myndirnar og sjáið stærri gerðina.
Við Svínavatn þar sem tilveran speglaði sig í glersléttum vatnsfletinum…
…og hestar úti á tanga nældu sér í grös sem enn höfðu ekki sölnað…
…eftir kaffi og kleinu í Ferstiklu varð ekki hjá því komist að stansa í nágrenni Bjarteyjarsands og anda að sér stemningunni…
…og loks, innan við Þyril, nær Botni, kitlaði þessi laglegi litli foss klappirnar sem hann glettist við.
Flott! Þetta var fallegur dagur. Og nú fer enginn Hvalfjörðinn svo að þar er útivistarparadís.
Þær eru fallegar myndirnar hjá þér og flottir litir sem koma vel framm þar. Kær kveðja.