Að minnsta kosti tvennt, í umræðu dagsins, skil ég ekki. Annað er hvers vegna í ósköpunum ekki er samið við flugumferðarstjóra. Ef í húfi eru tekjur landsins upp á tvo milljarða á ári, – af hverju hefur Geir ekki skipað samgönguráðherra að semja við flugumferðarstjóra?
Hitt er um Össur. Aftur og aftur fær hann þessi glæsilegu tækifæri til að koma fram í sjónvarpi og tjá sig. Og aftur og aftur enda viðtölin með því að áhorfendur eru jafn undrandi og áður.